20.02.1920
Neðri deild: 8. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 146 í C-deild Alþingistíðinda. (1046)

26. mál, laun embættismanna

Pjetur Jónsson:

Mjer skilst, að málið eigi ekki heima í fjárveitinganefnd. Það stendur í nánu sambandi við annað mál, sem heyrir alls ekki undir þessa nefnd. Ef hjeraðinu verður skift í tvent, verður tiltekið í sömu lögum, í hverjum launaflokki þau skulu vera.