20.02.1920
Neðri deild: 8. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 146 í C-deild Alþingistíðinda. (1047)

26. mál, laun embættismanna

Sveinn Björnsson:

Jeg kann því illa að fjárveitinganefnd megi ekki hafa áhrif á þetta mál, sem fer fram á aukin útgjöld úr landssjóði. Jeg tel sjálfsagt, að hún fái að gera till. um það, hvort þessi útgjöld skuli eiga sjer stað eða ekki. En hún gæti að sjálfsögðu borið ráð sín saman við nefnd þá, sem fjallar um hjeraðsskiftinguna.