10.02.1920
Sameinað þing: 1. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í B-deild Alþingistíðinda. (105)

Kosning til efri deildar

Guðmundur Björnson:

Samkvæmt ótvíræðum ákvæðum þingskapanna, er hver þm. skyldur að taka við kosningu til Ed. Kosning hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) er því fyllilega lögmæt eftir þingsköpunum, og sameinað þing getur ekki breytt þeim.