24.02.1920
Neðri deild: 11. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 172 í C-deild Alþingistíðinda. (1077)

46. mál, Landsbanki Íslands sem hlutabanki

Jakob Möller:

Það er síður en svo, að jeg sje að tefja fyrir því, að málið fari til nefndar, því að jeg álít það sjálfsagt, en vildi að eins benda á það, að ekki má fara með þetta mál eins og svo mörg önnur, sem ekki sjá dagsljósið eftir að þau eru komin í nefnd. Jeg vildi að eins lýsa yfir því, að jeg vil, að þetta mál komi til afgreiðslu hjer sem allra fyrst.