27.02.1920
Neðri deild: 17. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 188 í C-deild Alþingistíðinda. (1111)

55. mál, lánsheimild til ostagerðarbús

Fjármálaráðherra (M. G.):

Í tillögu þeirri, sem hjer liggur fyrir, er ekkert tekið fram um það, úr hvaða sjóði þetta skuli veitt, og vil jeg því spyrja, hvort ætlast sje til, að lánið verði veitt úr viðlaga- eða ríkissjóði. Jeg veit ekki, hvort til verður fje í viðlagasjóði, og vil taka það fram, að úr honum er ekki lánað nema gegn 1. veðrjetti í fasteign eða ábyrgð sýslufjelaga.