27.02.1920
Neðri deild: 17. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 188 í C-deild Alþingistíðinda. (1113)

55. mál, lánsheimild til ostagerðarbús

Fjármálaráðherra (M. G.):

Jeg skildi svo þá ákvörðun, sem gerð var í fyrra, um aðskilnað ríkis- og viðlagasjóðs, að hætt yrði með öllu að lána úr ríkissjóði, og vil jeg eindregið fyrir mitt leyti, að því sje fylgt. Jeg vil því ekki láta leggja svo mikla áherslu á, að þetta lán verði veitt, að það komi til mála að veita það, nema til sje fje í viðlagasjóði.