23.02.1920
Neðri deild: 10. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 114 í B-deild Alþingistíðinda. (160)
8. mál, þingmannakosning í Reykjavík
Sveinn Ólafsson:
Jeg hafði ekki ætlað mjer að lengja umræðurnar, en það var þessi skáldlega fluga hv. þm. Dala. (B. J.), um þrengslin í þingsalnum, sem kom mjer til að standa upp. Um það, hvað hv. þm. (B. J.) hefir heyrt um þessi þrengsli, skal jeg ekki segja, en það er víst, að jeg hefi hvorki á það minst sjálfur nje heyrt einu orði á það minst af öðrum fyr en nú, enda er þetta hugarfóstur bersýnilega til orðið í skáldheila hv. þm. Dala. (B. J.) og sver sig greinilega í ætt við mörg önnur systkini sín. Hv. þm. (B. J.) var að bregða mjer um sinnaskifti eða hughvörf einhver. Ekki skal um það fást, enda ekki svo, sem goðsögn sje, þótt frá honum komi. En út af því vil jeg leyfa mjer að benda á þær sennilegustu ástæður fyrir sinnaskiftum háttv. þm. frá 1917, er hann hervæddist mót fjölgun þm. í Reykjavík, þeirri, sem hann nú mælir fastast með. Honum mun vera farið að leiðast að ganga á gaddinum vestur í Dölum og uggvænt orðið um hagleysi þar, en hins vegar snapaseigt hjer í Reykjavík og eigi ólíklegt, að hjer yrðu hnjótar fyrir hann, er vorsultur eykst vestra, og er þá rjett lýst jafnhyggnum manni, er hann teflir eigi öllu í tvísýnu útigangs.
Þá vil jeg snöggvast víkja að orðum, sem fjellu hjer hjá hv. 1. þm. Rang. (Gunn. S.). Hann taldi mestu nauðsyn á að aðgreina sjávarhjeruð og sveita við væntanlega og nýa kjördæmaskipun. Þessu hefir oft verið slegið fram, og af mörgum, og líta margir svo á, að þetta sje heillaráð til að skapa öllum jafnrjetti um fulltrúaval. En jeg hygg þetta að eins til hins verra og álít, að nákvæm skifting á þessu bygð leiddi fremur til að stækka djúpið milli sjávarmanna og sveitamanna en að brúa það. Í mörgum hjeruðum hagar svo til, að sömu mennirnir stunda bæði sjávarútveg og landbúnað, og veit jeg ekki, hvernig hv. 1. þm. Rang. (Gunn. S.) vill skifta, þar sem svo er ástatt. Jeg hygg, að slík breyting myndi vekja sundurlyndi og stjettaríg, en ekki eyða þeim óheillagestum.