28.02.1920
Efri deild: 18. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 165 í B-deild Alþingistíðinda. (219)

8. mál, þingmannakosning í Reykjavík

Björn Kristjánsson:

Hvað mikinn greiða sem jeg vildi gera hv. þm. Seyðf. (Jóh. Jóh.), þá get jeg ekki tekið till. aftur. Jeg ætla að fá úrskurð deildarinnar og sjá, hve sanngjörn hún er í þessu máli, og ef hún fellir hana, þá sjest síðar, hvaða byr hún fær. Annars þekki jeg ekki þær pólitísku línur, sem hjer liggja bak við.