28.02.1920
Efri deild: 18. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 167 í B-deild Alþingistíðinda. (222)

8. mál, þingmannakosning í Reykjavík

Sigurður Jónsson:

Afstaða mín er lík afstöðu háttv. síðasta ræðumanns (G. G.). En annars voru það ummæli háttv. sessunauts míns (B. K.), sem komu mjer til að standa upp. Hann sagði, að af undirtektum þingdm. nú mætti marka afstöðu þeirra til málsins síðar meir. Þessum skilningi mótmæli jeg algerlega fyrir mitt leyti.