23.02.1920
Efri deild: 8. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 187 í B-deild Alþingistíðinda. (277)
10. mál, laun hreppstjóra og aukatekjur
Forsætisráðherra (J. M.):
Þetta stjórnarfrv. er fram komið samkvæmt áskorun hv. Nd. í fyrra, þar sem farið var fram á það, að stjórnin gerði ráðstafanir til þess, að bætt yrðu laun hreppstjóra. Ráðuneytið var þeirrar skoðunar, að rjettast væri að velja þá leið, sem hjer hefir verið farin, og haga dýrtíðaruppbótinni eftir sömu reglum og gilda fyrir starfsmenn ríkisins samkvæmt launalögunum.
Það verður ekki sagt, að þessi uppbót sje svo mikil, að ríkissjóð muni það nokkru verulegu. En hins vegar er starf hreppstjóranna orðið svo umfangsmikið í ýmsum hreppum, að það er meira en svo, að það sje fullgoldið með núverandi launakjörum.
Eins og hæstv. forseti gat um, ætti málið hjer að fara til sömu nefndar og það var í í hv. Nd., sem sje fjárveitinganefndar.