21.02.1920
Neðri deild: 9. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 238 í B-deild Alþingistíðinda. (356)

14. mál, stimpilgjald

Sveinn Björnsson:

Jeg býst við því, að þetta verði ákveðið þannig, að málið fái að ganga til 3. umr., en vildi gjarnan láta þau orð fylgja því til fjárhagsnefndar, að hún taki nú frv. enn betur til athugunar, því að það mun vera fleira en þessi brtt., sem mun þurfa athugunar við.