24.02.1920
Neðri deild: 11. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 321 í B-deild Alþingistíðinda. (534)

31. mál, lögreglusamþyktir

Einar Þorgilsson:

Jeg sje ekki, að brtt. á þgskj. 59, frá allsherjarnefnd, sje nein efnisbreyting á frv., heldur að eins orðabreyting. Þess vegna er ekki ástæða til að fara um það fleiri orðum, en jeg beiðist þess, að það fái að ganga til 3. umr.