10.02.1920
Sameinað þing: 1. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í B-deild Alþingistíðinda. (59)

Kosning til efri deildar

Bjarni Jónsson:

Jeg vildi spyrja, hvort þetta sje ekki áður útkljáð mál, því að forseti hafði lýst yfir því, að þessir menn væru rjett kjörnir til Ed. Mjer er enginn akkur í að nauðga nokkrum til Ed., en lögin eru á móti breytingu í þessu efni, þar sem forseti hefir þegar felt þann úrskurð, sem fyr var sagt. Annars er þetta ekki frá mínum rótum runnið.