19.02.1920
Neðri deild: 7. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 356 í B-deild Alþingistíðinda. (666)

22. mál, útborgun á launum presta

Flm. (Sigurður Stefánsson):

Það gladdi mig mikið að heyra, að biskup hefir verið svo hugsunarsamur að athuga þetta mál. Jeg hefði að vísu getað búist við, að hann hefði lagt fram till. fyrir áramótin, jeg álít það ekkert ofverk, en um það ætla jeg ekki að tala.

Jeg vona, að væntanleg stjórn taki málinu eins vel og sú stjórn, sem nú er, og sje jeg svo ekki ástæðu til að ræða þetta frekar.