13.02.1920
Sameinað þing: 2. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 481 í B-deild Alþingistíðinda. (67)

Rannsókn kjörbréfa

Frsm. kjörbrjefanefndar (Gísli Sveinsson):

Jeg hefi að eins að tilkynna fyrir hönd kjörbrjefanefndar, að hún hefir fengið í hendur kjörbrjef hv. þm. Vestm. (K. E.), og er ekkert við það að athuga. Nefndin leggur því til, að hv. Alþingi taki kosningu þingmannsins gilda.