27.02.1920
Efri deild: 14. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 428 í B-deild Alþingistíðinda. (747)

50. mál, landhelgisgæsla

Karl Einarsson:

Till. þessi er borin fram af sjávarútvegsnefnd háttv. Nd. og hefir verið samþykt óbreytt í Nd. Sjávarútvegsnefnd þessarar hv. deildar hefir ekki enn tekið ákvörðun í málinu. En jeg hefi þau boð að flytja frá formanni þeirrar nefndar, að hann muni kalla saman nefndarfund milli funda í dag, til þess að athuga málið, og óskar hann þess, að till. verði nú vísað til síðari umr.