28.02.1920
Neðri deild: 18. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 55 í C-deild Alþingistíðinda. (923)

57. mál, peningamálanefnd

Forsætisráðherra (J. M.):

Það er auðvitað, að ráðstöfun sú, er hjer er farið fram á, miðar ekki sjerstaklega að því, að hafa áhrif á gengismun; það getur hún ekki haft eftir því, sem á stendur hjá oss, heldur beint til þess að sporna við óþarfri eyðslu.

Mál þetta er að fyrra bragði upp tekið af bankastjórnunum hjer.