26.02.1920
Neðri deild: 15. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 73 í C-deild Alþingistíðinda. (948)
53. mál, fótboltaferð um Austfirði
Þórarinn Jónsson:
Jeg vildi að eins gera stutta athugasemd. Jeg er þakklátur hæstv. atvinnumálaráðherra (P. J.) fyrir uppástungu hans; hygg jeg, að það sje besta úrlausnin úr því sem komið er. Hv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) vildi heldur láta styrkinn falla niður en breyta ákveðinni áætlun Sterlings. Þá virðast þessar bátaferðir ekki koma að svo miklu gagni, úr því þær að engu geta komið í staðinn fyrir Sterlingsferðir. Svo er það líka að fara aftan að siðunum, að veita styrk til bátaferða áður en nokkur bátur er fenginn. Jeg vildi mælast til þess, að tillögumenn vildu taka till. aftur, eftir að þeir hafa nú heyrt orð hæstv. atvinnumálaráðh. (P. J.).