26.02.1920
Neðri deild: 15. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 77 í C-deild Alþingistíðinda. (958)

53. mál, fótboltaferð um Austfirði

Sveinn Björnsson:

Mjer finst, að þar sem ný till. er komin fram um samgöngumál í heild sinni, sje rjett og sjálfsagt að fá álit samgöngumálanefndar um málið, áður en það kemur til 2. umr. Jeg vil því, að þessu máli sje vísað til samgöngumálanefndar með því ákveðna fororði, að hún hafi fyrir 2. umr. þessa máls gefið álit sitt um till. hæstv. atvinnumálaráðh. (P. J.), en hún innibindur í sjer allar till., sem fram hafa komið í þessu máli, þar sem hún fjallar um samgöngumálin í heild.