27.02.1920
Neðri deild: 16. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 79 í C-deild Alþingistíðinda. (965)

54. mál, flóabátsferðir Norðanlands

Magnús Kristjánsson:

Það hefir nú verið samþ. að veita 80 þús. kr. til flóabátaferða. Í því trausti, að stjórnin sjái hagsmunum þessa landshluta borgið, eigi síður en annara, get jeg tekið aftur till. mína, um sjerstaka fjárveitingu til strandferðabáts norðanlands, og vænti þess, að meðflm. minn sje því samþykkur.