13.02.1920
Efri deild: 3. fundur, 32. löggjafarþing.
Sjá dálk 121 í C-deild Alþingistíðinda. (997)

11. mál, sérleyfi til hagnýtingar á orkuvötnum og raforku

Jóhannes Jóhannesson:

Jeg vil láta þess getið, í sambandi við þetta mál, að aðalástæða þess, að það varð ekki útrætt nje afgreitt frá allsherjarnefnd þessarar deildar í fyrra, var sú, að nefndin var svo önnum kafin við önnur störf, að þessi frv. komust ekki að. Jeg hefi að vísu ekki fyrir mjer nú skrá yfir störf nefndarinnar, en vona þó, að hv. þm. sjeu þau svo kunn, að þeir virði nefndinni til vorkunnar, þótt hún hafi ekki getað afgreitt þessi mál þá.