21.02.1921
Neðri deild: 5. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 933 í B-deild Alþingistíðinda. (1031)

10. mál, útflutningsgjald af síld o. fl.

Fjármálaráðherra (M. G.):

Aðeins örfá orð. Hefi ekki sjeð þetta nýja frv., og get því ekki sagt neitt um það að svo stöddu, nje hvort jeg muni verða því fylgjandi. Verð þess vegna að halda fram mínu frv., og endurtek þá ósk mína, að því verði vísað til fjárhagsnefndar að umræðunni lokinni.