11.05.1921
Neðri deild: 67. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1010 í B-deild Alþingistíðinda. (1108)

3. mál, fasteignaskattur

Fjármálaráðherra (M. G.):

Jeg vil benda hv. 3. þm. Reykv. (J. Þ.) á það, að það er ekki stjórnarinnar að leiðrjetta matið, heldur nefndarinnar. En hún álítur sjer ekki fært að ferðast út um alt land, til þess að leiðrjetta það, sem kynni að vera eitthvað ábótavant. Stjórnin á hjer engan hlut að máli. Hún gat ekki skipað nefndinni að meta á ákveðinn hátt.