07.05.1921
Efri deild: 64. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1314 í B-deild Alþingistíðinda. (1258)

41. mál, fjárlög 1922

Frsm. fjvn. (Sigurður Hjörleifsson Kvaran):

Það er satt, sem háttv. þm. Vestm. (K. E.) segir um brúna á Eyjafjarðará. Hún er komin í sjerstök lög, en, þau eru ekki komin til framkvæmda enn og verða varla mjög brátt. En um vitana má geta þess, að þótt þeir sjeu teknir upp nú, þá eru sumar þær fjárveitingar alla leið síðan 1915.