14.05.1921
Neðri deild: 70. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1395 í B-deild Alþingistíðinda. (1311)

41. mál, fjárlög 1922

Jón Auðunn Jónsson:

Jeg skal nota eina mínútu. Það er ekki vel hægt að skýra afstöðu peningamálanefndar til till. á þskj. 610 í svo fljótu bragði. Það var umtalað, að nefndin skilaði áliti með tillögunni, sem skýrði frá því, sem fyrir nefndinni vakir, og mun hún gera það. Vona jeg að hæstv. fjrh. (M. G.) taki það gilt.