10.05.1921
Efri deild: 66. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1488 í B-deild Alþingistíðinda. (1369)

7. mál, tekjuskattur og eignarskattur

Fjármálaráðherra (M. G.):

Frv. þetta tók mjög litlum breytingum í háttv. Nd., og jeg óska, að það fái eins velviljaða meðferð hjer eins og þar. Þetta frv. kemur að vísu nokkuð seint til þessarar háttv. deildar, en jeg vona, að háttv. fjhn. fái tíma til að athuga það nokkurn veginn, og ætti það að ganga fremur fljótt, því að mjer er kunnugt um, að einn maður úr nefndinni hefir verið kosinn til að fylgjast með gangi þess í Nd., og þótt nú sje áliðið þingtímans, þá vona jeg, að það verði afgreitt frá háttv. deild á þessu þingi, vonandi breytingalítið eða breytingalaust.