12.05.1921
Neðri deild: 68. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1546 í B-deild Alþingistíðinda. (1446)

45. mál, Sogsfossarnir

Eiríkur Einarsson:

Það var að vísu ýmislegt, sem jeg ætlaði að segja í sambandi við þetta mál, en mjer þykir rjettara að geyma það þangað til þál.till. okkar á þskj. 425 verður til umr., og ætti þess ekki langt að bíða, þar sem hún er næsta mál á dagskrá fundarins.

Aðeins skal jeg geta þess, að höfuðatriði frv. er mjer áhugamál að nái fram að ganga í einhverri mynd, það er virkjunar- og járnbrautarrannsókn, en jeg mun þó greiða atkvæði á móti frv., í trausti þess að till. okkar nái fram að ganga. Mun jeg þá, er hún verður til umr., gera nánari grein fyrir skoðun minni á máli þessu, og læt þetta nægja, sem einskonar greinargerð fyrir atkvæði mínu í þessu máli, er nú er til umr.