12.04.1921
Neðri deild: 41. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1583 í B-deild Alþingistíðinda. (1486)

1. mál, hlutafélög

Atvinnumálaráðherra (P. J.):

Það þarf raunar enga framsögu. Frv. er samið að tilhlutun stjórnarinnar af einum prófessor við lagadeild Háskólans. Frumvarpið hefir nú gengið í gegn um háttv. Ed. og vona jeg, að það fái eins góðar viðtökur í þessari háttv. deild. Það var í háttv. allsherjarnefnd þar, og vona jeg því, að því verði vísað til háttv. allshn. hjer.