20.05.1921
Neðri deild: 75. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1613 í B-deild Alþingistíðinda. (1522)

1. mál, hlutafélög

Sigurður Stefánsson:

Mjer er kunnugt um það, að Ed. stendur svo saman um frv. þetta, að verði því nú breytt, þá fer það í sameinað þing og getur kostað miklar umræður þar. Slíkan leik finst mjer, að við ættum að forðast, þegar komið er svo að segja að þingslitum.