12.03.1921
Neðri deild: 21. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1653 í B-deild Alþingistíðinda. (1616)

81. mál, sala á Upsum

Flm. (Stefán Stefánsson):

Jeg vil þakka hæstv. forsrh. (J. M.) undirtektir hans, og fell frá till. minni um að setja málið í nefnd. Jeg fyrir mitt leyti tel það alls ekki nauðsynlegt, en af því að mjög sviplíku máli og þessu var vísað til landbúnaðarnefndar hjer í hv. deild í gærdag, leit jeg svo á, að þetta frv. mundi ekki fremur geta sloppið við athugun nefndar, en úr því það er álit hæstv. forsrh. (J. M.), að þetta sje ónauðsynlegt, fell jeg auðvitað frá minni tillögu.