03.03.1921
Neðri deild: 13. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1663 í B-deild Alþingistíðinda. (1643)

63. mál, eignarnám á vatnsréttindum í Andakílsá

Jón Þorláksson:

Það er aðeins út af ummælum háttv. síðasta ræðumanns, að vísa málinu ekki til nefndar, að jeg stend upp. Það eru ýms atriði í máli þessu, sem nauðsynlegt er að athuga í nefnd. (Fjrh.: Það á að fara til fossanefndar). Og þess vegna vil jeg gera það að tillögu minni, að því verði vísað til nefndar að umr. lokinni.