09.04.1921
Neðri deild: 39. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1689 í B-deild Alþingistíðinda. (1696)

77. mál, einkaleyfi til útgáfu almanaks

Jakob Möller:

Jeg vildi leyfa mjer að spyrja hæstv. forsrh. (J. M.), hvort það sje aðallega meiningin með þessu að styrkja einokunarstefnuna, eins og hann virtist gefa í skyn, því að ef svo væri, treystist jeg eigi til að greiða frv. atkv. mitt, sem jeg annars mundi gera.