15.04.1921
Neðri deild: 44. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1696 í B-deild Alþingistíðinda. (1726)

78. mál, sala á landspildu

Frsm. (Þórarinn Jónsson):

Jeg vildi aðeins geta þess, að frv. þetta er komið aftur frá háttv. Ed. og hefir tekið breytingum þar, þar sem 2. gr. hefir verið feld burtu, af þeirri ástæðu, að ákvæði hennar er til í gildandi lögum um sölu kirkjujarða. Og þó að þau eigi aðallega við sölu jarða, en ekki jarðarhluta eða landsneiða, þá telur nefndin rjett að samþ. frv. eins og það liggur fyrir. með þeirri skilgreiningu, að ákvæði gildandi laga eigi eins við hjer.