02.03.1921
Efri deild: 12. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1706 í B-deild Alþingistíðinda. (1742)

59. mál, sóknargjöld

Forseti (G. B.):

Jeg vil láta þess getið af minni hálfu, að jeg tel þetta frv. ekkert óþinglega fram borið. Þessu líkt hefir oft borið við áður. Að vísu hefir þá oftast verið venja, að nefndin skilaði áliti fyrst eða um leið og frv. var fram borið. Það eitt er því óvenjulegt um frv., að eigi skyldi fyrst koma fram nefndarálit um stjórnarfrv.