15.04.1921
Neðri deild: 44. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1721 í B-deild Alþingistíðinda. (1775)
101. mál, slysatrygging sjómanna
Frsm. (Þorleifur Guðmundsson):
Jeg misskildi ekki till. á þskj. 243, en jeg var að benda á, að hún ætti ekki sammerkt við till. háttv. 2. þm. Reykv. (J. B.). Jeg lagði ekki út í það að skýra till.; hún skýrir sig sjálf; en jeg var að taka það fram, að ekki væri hægt að leggja inn í hana þann anda, sem háttv. þm. (J. B.) vildi vera láta.
Jeg vil svo óska þess, að farið verði að ganga til atkvæða, og jeg vona, að háttv. deildarmenn snúist á sveif með meiri hl. nefndarinnar, en til hans getur háttv. 2. þm. Reykv. (J. B.) ekki talist.