27.04.1921
Efri deild: 54. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1726 í B-deild Alþingistíðinda. (1798)

123. mál, seðlaauki Íslandsbanka

Forseti (G. B.):

Með því að mjög þarf að hraða afgreiðslu þessa máls, þá leyfi jeg mjer að leita afbrigða frá þingsköpum um það, og leggja fyrir háttv. deild, hvort hún ekki vill samþ., að haldnir sjeu þrír fundir um málið, hver á eftir öðrum, og ef enginn mælir á móti, þá skoða jeg það samþ. án atkvgr.