27.04.1921
Efri deild: 54. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1726 í B-deild Alþingistíðinda. (1799)

123. mál, seðlaauki Íslandsbanka

Fjármálaráðherra (M. G.):

Jeg vil aðeins geta þess, að með því að mjög þarf að flýta þessu máli, þá hefir hv. peningamálanefnd Nd. flutt þetta mál, eftir beiðni stjórnarinnar. Frv. hefir þegar verið samþ. á fáum mínútum í hv. Nd., og vona jeg, að svo verði einnig hjer.