15.02.1921
Sameinað þing: 1. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 34 í B-deild Alþingistíðinda. (18)

Rannsókn kjörbréfa

Aldursforseti (S. J.):

Margir vildu hætta umræðum fyrir lítilli stundu, svo þess vegna beini jeg þeirri ósk minni til þeirra háttv. þm., sem þegar hafa beðið sjer hljóðs, að vera sem orðfæstir í ræðum sínum. Ættum við þá að geta lokið þessum rammaslag áður en langt er á kvöldið liðið, og þessi (fyrsti fundur sameinaðs þings lokið störfum sínum í dag.