22.04.1921
Efri deild: 49. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1742 í B-deild Alþingistíðinda. (1831)
86. mál, samvinnufélög
Frsm. (Sigurjón Friðjónsson):
Jeg skal gera lítillega grein fyrir brtt. á þskj. 351. Hún er fram komin vegna þess, að nefndin álítur, að nauðsyn geti verið á því, að sum þau lagaákvæði, sem falla úr gildi gagnvart samvinnufjel. með þessum lögum, haldi þó áfram að gilda gagnvart öðrum, t. d. ákvæði um útsvarsskyldu.
Viðvíkjandi fyrri brtt, á þskj. 355 vil jeg geta þess, að nefndin hefir ekkert við hana að athuga, og telur hana til bóta. Jeg álít það kost á skattinum, að einungis sje kveðið á um hámark hans, en sveitar- eða bæjarstjórnum sje í sjálfsvald sett, hvort þær nota sjer hámarkið eða ekki. Um síðari brtt. á sama þskj. get jeg sagt það sama, að nefndin getur fallist á hana, og býst jeg ekki við, að neitt þyki við hana að athuga.