25.04.1921
Neðri deild: 51. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1743 í B-deild Alþingistíðinda. (1835)

86. mál, samvinnufélög

Þorsteinn Jónsson:

Mál þetta er óvenjulega vel undirbúið í þingsins hendur, og auk þess vel athugað í háttv. Ed„ og samþykt þar með öllum atkvæðum.

Þar sem liðið er nú langt á þingtíma, hygg jeg heppilegast, að málið fari ekki í nefnd.

Ef einhverjir eru á móti málinu, geti þeir, jafnt fyrir það, greitt atkvæði móti því, og vilji einhverjir koma með brtt., er þeim það jafnauðvelt, hvort sem málið gengur til nefndar eða eigi.