10.05.1921
Efri deild: 66. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1962 í B-deild Alþingistíðinda. (2113)
54. mál, sala á prestsmötu
Frsm. (Sigurjón Friðjónsson):
Jeg sagði það um þetta mál við 2. umr., sem jeg áleit þörf á, og ef engin mótmæli koma fram, þá sje jeg ekki ástæðu til að fjölyrða um það nú. Mæli jeg með því, fyrir nefndarinnar hönd, að frv. fái að halda áfram, og verði samþ. hjer í þessari háttv. deild.