04.05.1921
Neðri deild: 62. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 1976 í B-deild Alþingistíðinda. (2154)

130. mál, veiting ríkisborgararéttar

Forsætisráðherra (J. M.):

Jeg verð að leggja áherslu á að vísa þessu máli til nefndar. Það ætti að vera föst regla þegar farið er fram á veiting ríkisborgararjettar. Nefndin á að rannsaka vel, hvort öll skilyrði sjeu fyrir, sem jeg býst nú við, að sje hjer.

Jeg legg því til, að frv. sje vísað til allsherjarnefndar.