07.03.1921
Neðri deild: 16. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2049 í B-deild Alþingistíðinda. (2249)

73. mál, eignarnám á landspildu Bolungarvíkurmölum

Flm. (Sigurður Stefánsson):

Það er í greinargerðinni og í fylgiskjölunum með frv. gerð svo glögg grein fyrir því, að jeg sje ekki ástæðu til að fara fleiri orðum um það, en óska, að háttv. deild vísi því til 2. umr., og það getur verið spursmál, hvort ætti heldur að vísa því til sjútvn. eða allshn., og læt jeg deildina um að skera úr því.