07.03.1921
Efri deild: 16. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 139 í B-deild Alþingistíðinda. (232)

32. mál, friðun rjúpna

Frsm. (Guðmundur Ólafsson):

Þetta kom til tals í nefndinni, en þar var enginn lögfræðingur. Fanst okkur það geta staðist, því að í hinum almennu friðunarlögum er aðeins ákveðin friðun rjúpna 7. hvert ár. Gæti því þessi brtt. okkar skoðast sem nánara ákvæði um það, hvernig friðunarárið skyldi telja.