19.04.1921
Neðri deild: 47. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2182 í B-deild Alþingistíðinda. (2332)
100. mál, Ríkisveðbanki Íslands
Magnús Jónsson:
Jeg get ekki verið sammála þeim háttv. þm. Daila. (B. J.) og háttv. 1. þm. Rang. (Gunn. S.) um, að dagskráin verði til þess eins, að frv. verði samþykt óbreytt á næsta þingi. Eftir dagskránni er stjórninni heimilt að bera fram frv. um landbúnaðinn einan, og slíta hann þannig út úr eðlilegu samhengi. Ef dagskráin hefði engar aðrar verkanir en að fresta málinu, væri hún saklaus en óþörf, en því er ekki að heilsa. Hún verður til þess að koma inn í málið sundrungu og tvískinnungi, og er því hættuleg. En jeg vil ekki blanda mjer í þær deilur, sem orðið hafa um hana milli einstakra manna.
Jeg vil þá heldur snúa mjer að brtt. hæstv. fjrh. (M. G.), og get jeg ekki lagt mikið upp úr þeim. Jeg tel það óviðkunnanlegt, að stofnun þessi verði hluti af Landsbankanum og lifi á bónbjörgum hjá honum. Jeg skil ekki, að það verði til þess að gera þennan nýja banka sjálfstæðari.
Mjer skildist það á hæstv. fjrh. (M. G.), að ríkissjóður mætti ekki binda í þessari stofnun fje það, er hann þyrfti til daglegra þarfa. Jeg held, að Slíku sje ekki til að dreifa, en ef svo væri, bætti brtt. hæstv. fjrh. (M. G.) ekki úr. Hún fer fram á það, að andvirði seldra kirkjujarða renni ekki í þennan banka, heldur þann, sem fyrir er. Með þessu verður sjóðurinn klofinn í tvent, og er það í alla staði óeðlilegt. Jeg held ekki, að þetta andvirði nemi miklu, og ekki þurfi að óttast, að mikið fje festist á þann hátt. Jeg veit, að Vestmannaeyjar yrðu stór biti, en í frv. er sett undir þann leka, því að þetta á aðeins að gilda þar til öðruvísi verður ákveðið.
Hjer er bent í þá átt, að breyta eigi, ef eitthvað óvænt kemur fyrir, ef að höndum ber stóra upphæð, sem ekki þykir ráðlegt að leggja í sjóðinn.
Þá er brtt. um að hækka vexti úr 2% í 4%, og nær það ver tillgangi sínum en eldra ákvæðið. Það verður til þess að varasjóður, ræktunarsjóður, kirkjujarðasjóður og viðlagasjóður aukast, en sá vöxtur verður ekki handbært fje. Ef þetta er ekki rjett skilið, bið jeg menn að leiðrjetta mig, en þetta sýnist ekki handbært fje, fljótt á litið.