04.05.1921
Efri deild: 62. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2308 í B-deild Alþingistíðinda. (2463)

117. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka hlutafjárauka o. fl.

Sigurður Eggerz:

Það var rökstutt um daginn, hvers vegna máli þessu var neitað um afbrigði frá þingsköpum, og mjer nægir að vísa til þeirra raka. Jeg verð að telja það næsta óeðlilegt, að flm. þessa máls hafi eigi áttað sig á því ennþá. Og jeg mótmæli því ennþá, að mál þetta sje tekið af dagskrá. En verði atkvæðagreiðsla um það, hvort málið skuli tekið af dagskrá eða ekki, þá beiðist jeg þess, að fram fari nafnakall um það.