11.05.1921
Neðri deild: 67. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2352 í B-deild Alþingistíðinda. (2491)

117. mál, seðlaútgáfa Íslandsbanka hlutafjárauka o. fl.

Fjármálaráðherra (M. G.):

Jeg leyfi mjer að stinga upp á því, að þessu frv. og frv. um seðlaútgáfurjett o. fl. verði vísað umræðulaust til 2. umr.

Tel jeg ástæðulaust, að málið fari í nefnd, því að það tefur tímann, en nú mjög að þingslitum liðið. Munu frv. þessi geta komið til 2. umr. á laugardaginn, því fjvn. mun tæpast hafa fjárlögin þá tilbúin.