19.05.1921
Neðri deild: 74. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2419 í B-deild Alþingistíðinda. (2552)

135. mál, heimild til lántöku fyrir ríkissjóð

Fjármálaráðherra (M. G.):

Jeg óska altaf eftir því, að háttv. þingmenn uppfylli þau loforð sín, er þeir gefa, og ekki síst á þingi. Háttv. 1. þm. Rang. (Gunn. S.) telur sig víst ekki bundinn við loforð sín; en jeg endurtek áskorun mína um vantraustsyfirlýsingu til mín.