20.05.1921
Efri deild: 76. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2422 í B-deild Alþingistíðinda. (2563)

135. mál, heimild til lántöku fyrir ríkissjóð

Sigurður Eggerz:

Jeg ætla ekki heldur að vekja hjer neinar umræður um þetta mál, en vísa, eins og hæstv. fjrh. (M. G.), til þess, sem jeg hefi áður sagt um það við mörg tækifæri hjer í deildinni.

Tími þingsins er nú mjög að þrotum kominn, og vil jeg því ekki stofna lánsheimildinni í nokkurn voða, með því að koma fram með brtt., þó jeg, eins og jeg tók fram hjer áðan, mundi hafa talið það rjettara, og þá af þeim ástæðum, er jeg þá tók fram.