20.05.1921
Efri deild: 77. fundur, 33. löggjafarþing.
Sjá dálk 2424 í B-deild Alþingistíðinda. (2571)

135. mál, heimild til lántöku fyrir ríkissjóð

Sigurður Eggerz:

Það var aldrei meiningin, að peningamálanefnd kæmi fram með till. sínar um lántökuna fyr en í þinglokin. Auk þess kom þetta frv. frá einum af aðalmönnum Sjálfstæðisflokksins, og var fram borið af honum í fullu samkomulagi við flokkinn.